Ferill 893. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1905  —  893. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni dómstólasýslunnar.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir dómstólasýslan?
    Í lögum um dómstóla, nr. 50/2016, er kveðið á um að Dómstólasýslan sé sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem annast sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna. Í sömu lögum er svo nánar kveðið á um hlutverk dómstólasýslunnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna dómstólasýslunnar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til dómstólanna allra og dómstólasýslunnar samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 eru 3.379,300 millj. kr. Þar er svo nánar greint á milli fjárframlaga til dómstólasýslunnar, héraðsdómstólanna, Landsréttar og Hæstaréttar Íslands. Fjárframlög til dómstólasýslunnar er 355,4 millj. kr. Hvorki er lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi né í bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.