Ferill 896. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1907  —  896. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Landhelgisgæslu Íslands.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Landhelgisgæsla Íslands?
    Um verkefni Landhelgisgæslu Íslands segir fyrst og fremst í lögum um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Landhelgisgæslu Íslands og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til Landhelgisgæslu Íslands samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 er 4.856,1 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi né bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.