Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 607 — 211. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).
(Eftir 2. umræðu, 15. desember.)
1. gr.
a. Í stað orðanna „eða heimilum sem falla undir lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007“ kemur: fyrir fötluð börn sem starfræktar voru á vegum hins opinbera og þar sem börn voru vistuð sólarhringsvistun.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Lög þessi taka til starfsemi þessara stofnana fram til 1. febrúar 1993.
2. gr.
3. gr.
a. 3. mgr. orðast svo:
Nú hefur vistmaður verið vistaður á fleiri en einni stofnun sem falla undir lög þessi og skal þá við endanlegt mat líta heildstætt til þeirra þátta sem tilgreindir eru í 1. og 2. mgr., þó þannig að heildarbætur rúmist innan marka þess sem getur í 2. mgr.
b. Orðin „allt að 2 millj. kr.“ í 1. málsl. 4. mgr. falla brott.
c. 2. og 3. málsl. 4. mgr. falla brott.
4. gr.
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Eigi síðar en 1. febrúar 2021 skal ráðherra fela tilteknum sýslumanni að gefa út innköllun vegna stofnana sem falla undir lög þessi.
b. Orðin „eða heimili“ og „er skýrslan tók til“ í 3. málsl. 1. mgr. falla brott.
c. Orðin „eða heimili“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
d. Lokamálsliður 2. mgr. orðast svo: Þar skal einnig gefinn kostur á að veita sýslumanni heimild til aðgangs að gögnum um viðkomandi sem varða málið hjá öðrum stjórnvöldum.
5. gr.
a. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Hann skal afla staðfestingar á því að viðkomandi hafi verið vistaður á þeirri stofnun sem um ræðir.
b. Í stað orðanna „einu og sama heimilinu eða“ í lokamálslið 1. mgr. kemur: einni og sömu.
c. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Sá sem hefur lýst kröfu skal taka afstöðu til sáttaboðs innan 30 daga frá móttöku þess. Verði sáttaboði ekki tekið innan þess frests telst því hafa verið hafnað.
d. Orðin „eða heimili“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
e. Í stað orðanna „fyrsti dagur næsta mánaðar“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 30 dögum.
6. gr.
a. Í stað „2. mgr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 3. mgr.
b. Orðin „eða heimili“ í lokamálslið 1. mgr. falla brott.
c. 3. mgr. orðast svo:
Úrskurðarnefndin skal hafa aðgang að gögnum sem sýslumaður hefur aflað skv. 2. mgr. 5. gr.
d. 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Nú telur sá sem kröfu gerir að gögn skv. 3. mgr. séu ófullnægjandi við mat á rétti hans til sanngirnisbóta samkvæmt lögum þessum, eða hann óskar af öðrum ástæðum eftir því að tjá sig nánar um atriði sem gögnin taka til, og skal þá úrskurðarnefndin heimila honum að leggja fram skriflega greinargerð.
e. Í stað orðanna „framkomna framburði“ í 2. málsl. 4. mgr. kemur: framkomnar upplýsingar.
7. gr.
a. Orðin „eða heimili, einkum á grundvelli skýrslu nefndar samkvæmt lögum nr. 26/2007“ í 2. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „1. dagur næsta mánaðar“ í 5. mgr. kemur: 30 dögum.
8. gr.
a. Í stað orðanna „Ráðherra skipar sérstakan tengilið sem koma skal“ í 1. málsl. kemur: Tengiliður stofnana fyrir fötluð börn skal koma.
b. 3. málsl. orðast svo: Þá skal hann leiðbeina fyrrverandi vistmönnum sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar um úrræði sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem varðandi endurhæfingu og menntun.
c. Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2013“ í lokamálslið kemur: að kröfulýsingarfresti skv. 1. mgr. 5. gr. lýkur.
d. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tengiliður vegna stofnana fyrir fötluð börn.
9. gr.
10. gr.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007.