Ferill 875. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2040  —  875. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um hindranir fjölmiðla á Keflavíkurflugvelli.


     1.      Hvert er mat ráðherra á þeirri atburðarás sem átti sér stað aðfaranótt 3. nóvember 2022 á Keflavíkurflugvelli þegar flóðlýsingu var beint að fjölmiðlum til að hindra störf þeirra, með tilliti til alþjóðlegra mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að sem og íslenskra laga?
    Vísað er til svars menningar- og viðskiptaráðherra við sömu spurningu á þskj. 1246 í 652. máli á yfirstandandi þingi, enda fer sá ráðherra með málefni fjölmiðla.

     2.      Brást ráðuneytið við ofangreindum atvikum á einhvern hátt? Ef svo er, hvernig? Ef ekki, af hverju ekki? Vísast hér til þess að menningar- og viðskiptaráðherra metur það svo að beina skuli þessari fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra í svari á þskj. 1246 á yfirstandandi þingi.
    Ráðuneytið taldi ekki sérstakt tilefni til þess að bregðast við hvað varðar þau málefni sem það fer með gagnvart félaginu að öðru leyti en að fara yfir málsatvikin með félaginu. Fram hefur komið opinberlega í fréttamiðlum að félagið hafi fundað með ríkislögreglustjóra til að endurskoða og skýra verkferla. Nánar má vísa til yfirlýsingar Isavia um þetta atriði.