Ferill 902. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1341  —  902. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um húsnæði mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar.

Frá Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.


     1.      Hvernig er húsnæði mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar að Krókhálsi 5a nýtt að öðru leyti en fyrir þjálfun lögreglumanna?
     2.      Hver er mánaðarlegur kostnaður við rekstur húsnæðisins árið 2024?
     3.      Hefur annar betri húsakostur verið skoðaður fyrir starfsemi mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar?


Skriflegt svar óskast.