Ferill 772. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 1590  —  772. mál.
Leiðrétt undirskrift.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimild).

Frá velferðarnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, ÖBÍ – réttindasamtökum og Landssamtökunum Þroskahjálp.
    Nefndinni bárust tvær umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Lagt er til að við 8. gr. bætist reglugerðarheimild til handa ráðherra til að kveða á um stoðþjónustu, svo sem um aðstoðarmannakort fyrir fatlað fólk og um fæðisfé starfsfólks sem matast með notanda í störfum sínum. Með 2. gr. er lögð til sú breyting á 40. gr. laganna að við bætist heimild til að setja reglugerðir um framkvæmd þjónustu er varðar stuðningsfjölskyldur, frístundaþjónustu, styrkveitingar og um framkvæmd stoðþjónustu.
    Markmið frumvarpsins er að stuðla að auknu jafnrétti í þjónustu við fatlað fólk. Telur nefndin mikilvægt að ráðherra fái þær heimildir til að setja reglugerðir sem kveðið er á um í frumvarpinu með það fyrir augum að tryggja jafnræði fatlaðs fólks og ófatlaðs, óháð búsetu eða þjónustuformi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 26. apríl 2024.

Steinunn Þóra Árnadóttir,
form., frsm.
Líneik Anna Sævarsdóttir. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.
Óli Björn Kárason. Bryndís Haraldsdóttir. Jóhann Páll Jóhannsson.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir. Guðmundur Ingi Kristinsson. Ásmundur Friðriksson.