Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1160, 127. löggjafarþing 428. mál: kirkjubyggingasjóður.
Lög nr. 35 16. apríl 2002.
Þingskjal 1160, 127. löggjafarþing 428. mál: kirkjubyggingasjóður.
Lög nr. 35 16. apríl 2002.
Lög um brottfall laga um kirkjubyggingasjóð, nr. 21 18. maí 1981.
1. gr.
Kirkjubyggingasjóður, sem starfar á grundvelli laga nr. 21 18. maí 1981 og stofnaður var með lögum nr. 43 14. apríl 1954, skal lagður niður og renna í Jöfnunarsjóð sókna, sem starfar á grundvelli laga um sóknargjöld o. fl., nr. 91 29. desember 1987.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla brott lög um kirkjubyggingasjóð, nr. 21 18. maí 1981.Samþykkt á Alþingi 8. apríl 2002.