Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 1997. Útgáfa 121a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um flugmálaáætlun og fjáröflun til framkvæmda í flugmálum
1987 nr. 31 27. mars
I. kafli. Flugmálaáætlun.
1. gr. Samgönguráðherra leggur að fengnum tillögum flugráðs og flugmálastjóra tillögu til þingsályktunar um flugmálaáætlun fyrir sameinað Alþingi svo fljótt eftir þingsetningu sem auðið er. Flugmálaáætlun öðlast gildi er Alþingi hefur samþykkt hana. 1)
Í tillögunni skal gerð grein fyrir fjáröflun þeirri sem fyrirhuguð er á áætlunartímabilinu og útgjöld sundurliðuð eftir helstu rekstrar- og framkvæmdaflokkum.
Við meðferð tillögunnar fyrir Alþingi skal ákveða skiptingu útgjalda til einstakra framkvæmdaliða og afgreiða tillöguna sem þingsályktun um flugmálaáætlun fyrir fjögurra ára tímabil.
Sé fé veitt á annan hátt til framkvæmda í flugmálum skal farið með það innan flugmálaáætlunar.
Er þingsályktun um flugmálaáætlun hefur gilt í tvö ár skal hún endurskoðuð og jafnframt samin áætlun fyrir tvö ár til viðbótar þannig að ávallt sé í gildi áætlun fyrir að minnsta kosti tvö ár.
1) Augl. A 112/1996.
2. gr. Í flugmálaáætlun skulu taldir allir flugvellir, nýbyggingar flugvalla og búnaður fyrir flugleiðsögu og flugumferðarstjórn á gildistíma áætlunarinnar. Enn fremur áætlaður kostnaður við viðhald flugvalla og annar kostnaður flugmálastjórnar á sama tímabili.
Ráðherra tilkynnir flugmálastjórn í janúar ár hvert hve háa fjárhæð skuli miða við þegar gerð er áætlun um framkvæmdir fyrir næsta ár.
3. gr. Í þingsályktun um flugmálaáætlun skal verkefnum skipað í eftirfarandi flokka:
Áætlunarflugvellir I.
Flugvellir með 1800 m flugrein og lengri.
Áætlunarflugvellir II.
Flugvellir með 1200 að 1800 m flugrein.
Áætlunarflugvellir III.
Flugvellir með 800 að 1200 m flugrein.
Aðrir flugvellir og lendingarstaðir.
Flugvellir með allt að 800 m flugrein.
Flugleiðsögu- og flugumferðarþjónusta.
Allur búnaður sem ætlaður er til flugleiðsögu eða flugumferðarstjórnar.
Önnur flugmálastarfsemi.
Öll önnur flugmálastarfsemi en sú sem að framan er talin.
4. gr. Ráðherra skal leggja skýrslu um framkvæmd flugmálaáætlunar fyrir hvert reglulegt Alþingi.
II. kafli. Fjáröflun til framkvæmda í flugmálum.
5. gr. Þeir sem selja flugvélabensín og þotueldsneyti á íslenskum flugvöllum til innanlandsflugs og millilandaflugs skulu greiða af því sérstakt gjald. Gjald þetta skal nema 1,30 kr. af hverjum lítra flugvélabensíns og 0,65 kr. af hverjum lítra þotueldsneytis.
Heimilt er að veita undanþágu frá greiðslu þessa gjalds vegna flugs á skemmri flugleiðum innan sama landsfjórðungs.
Eldsneyti til áætlunarflugs milli Íslands og Norður-Ameríku er undanþegið greiðslu gjalds skv. 1. mgr.
[Gjald skv. 1. mgr. skal ekki lagt á flugvélaeldsneyti sem er undanþegið gjaldtöku í milliríkjasamningum.] 1)
1)L. 94/1992, 1. gr.
6. gr. [Flugmálastjórn annast innheimtu sérstaks gjalds skv. 5. gr. og skal tekjum af því einungis varið til rekstrar flugvalla og framkvæmda í flugmálum samkvæmt flugmálaáætlun.] 1)
1)L. 148/1994, 10. gr.
7. gr. Greiða skal sérstakt gjald, flugvallagjald, vegna hvers manns sem ferðast með loftfari frá Íslandi til annarra landa.
Undanþegin gjaldskyldu eru börn innan tveggja ára aldurs, skráðar áhafnir loftfara, þeir sem viðkomu hafa á Íslandi samkvæmt farseðli milli annarra Evrópulanda og Norður-Ameríku og þeir sem ferðast með loftförum varnarliðs Bandaríkja Norður-Ameríku hér á landi.
8. gr. Flugvallagjald skal vera 750,00 kr. fyrir hvern farþega sem ferðast frá Íslandi til annarra landa. Fyrir farþega á aldrinum tveggja til tólf ára skal greiða hálft gjald en fyrir yngri farþega skal ekkert gjald greiða. Um ferðir til Færeyja og Grænlands gilda ákvæði 9. gr.
Flugvallagjalds skv. 1. mgr. skal getið í verði farseðils.
9. gr. Flugfélög, sem annast flutning farþega innanlands eða til Færeyja og Grænlands, skulu greiða gjald er nemi 100,00 kr. á hvern farþega er ferðast á þeim leiðum og eldri eru en tólf ára. Fyrir farþega á aldrinum tveggja til tólf ára skal greiða hálft gjald. Fyrir farþega yngri en tveggja ára skal ekkert gjald greiða. Einungis skal greitt eitt gjald þó að millilent sé milli brottfararstaðar og ákvörðunarstaðar vegna flugáætlunar enda vari viðdvöl ekki lengur en sex klukkustundir.
Flugvallagjalds skv. 1. mgr. skal getið í verði farseðils.
10. gr. Eigandi loftfars og sá er ábyrgð ber á rekstri þess ber ábyrgð á greiðslu flugvallagjalds.
Fyrir brottför loftfars frá Íslandi skal afhenda fulltrúa flugmálastjórnar á flugstöð skrá yfir farþega með því, áhöfn þess og hverjir séu gjaldfrjálsir skv. 2. mgr. 7. gr. eða greiða skuli hálft gjald skv. 8. gr. Skrá þessi skal undirrituð af flugstjóra eða umboðsmanni flugfélags á flugvelli.
11. gr. Flugvallagjald vegna farþega, er ferðast með loftförum sem skráð eru erlendis og allra loftfara sem ekki er flogið á áætlunarleiðum, skal greiða fulltrúa flugmálastjórnar fyrir brottför loftfars um leið og afhent er skrá skv. 2. mgr. 10. gr.
12. gr. Flugvallagjald vegna farþega sem ferðast í áætlunarflugi á viðurkenndum áætlunarleiðum, svo og gjald skv. 9. gr., skal greiða til flugmálastjórnar eigi síðar en 15. dag næsta almanaksmánaðar eftir brottför.
13. gr. Sé flugvallagjaldi ekki skilað á réttum gjalddaga skal sá sem gjaldinu ber að skila greiða af því viðurlög er nemi 1% fyrir hverja byrjaða viku frá gjalddaga. Nú er skrifstofa flugmálastjórnar lokuð 15. dag mánaðar og telst þá gjalddagi vera næsti dagur þar á eftir sem skrifstofan er opin til almennrar afgreiðslu.
Flugvallagjaldi fylgir lögtaksréttur.
Heimilt er innheimtumanni að láta lögreglu stöðva atvinnurekstur þess er eigi gerir skil á réttum gjalddaga þar til skil eru gerð, m.a. með því að setja skrifstofur, starfsstofur og flutningstæki hans undir innsigli.
14. gr. [Tekjum af flugvallagjaldi skal varið til framkvæmda í flugmálum og rekstrar flugvalla samkvæmt flugmálaáætlun.] 1)
1)L. 144/1995, 52. gr., sbr. þó ákvæði l. 140/1996, 23. gr.
15. gr. Sérstakt gjald skv. 5. gr. og flugvallagjald skv. 8. og 9. gr. skulu vera grunntaxtar. Ráðherra er heimilt að hækka gjöld þessi, allt að þeirri hækkun sem kann að verða á vísitölu byggingarkostnaðar, sbr. lög nr. 18 23. mars 1983. 1) Grunntaxtar gjaldanna eru miðaðir við vísitölu í janúar 1986, þ.e. 250 stig.
1)Nú l. 42/1987.
16. gr. Til greiðslu kostnaðar samkvæmt flugmálaáætlun skal auk þeirra tekna sem aflað verður samkvæmt ákvæðum laga þessara veita sérstakt framlag á fjárlögum.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
17. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1987. …
Ákvæði til bráðabirgða. …