2. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 13. október 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:00

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.

2) 160. mál - breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:00
Nefndin fékk á sinn fund Þorvald Heiðar Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti sem kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Tillaga um að Páll Magnússon verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með vikufresti var samþykkt.

3) 11. mál - barnalög Kl. 09:17
Tillaga um að Páll Magnússon verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

4) 16. mál - kyrrsetning, lögbann o.fl. Kl. 09:19
Tillaga um að Birgir Ármannsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

5) 132. mál - almenn hegningarlög Kl. 09:20
Tillaga um að Páll Magnússon verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með þriggja vikna fresti var samþykkt.

6) Störf nefndarinnar Kl. 09:20
Nefndin ræddi starfið framundan og fyrirkomulag næstu funda.

7) Önnur mál Kl. 09:32
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:32