31. fundur
atvinnuveganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 2. mars 2023 kl. 09:10


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:10
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:10
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:10
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:10
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:10
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:25
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:10
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:10

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 30. fundar var samþykkt.

2) 537. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar mættu Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, Agnar Bragi Bragason, Jón Þrándur Stefánsson og Skúli Kristinn Skúlasona frá matvælaráðuneyti. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 538. mál - veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar mættu Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, Agnar Bragi Bragason, Jón Þrándur Stefánsson og Skúli Kristinn Skúlasona frá matvælaráðuneyti. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 539. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar mættu Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, Agnar Bragi Bragason, Jón Þrándur Stefánsson og Skúli Kristinn Skúlasona frá matvælaráðuneyti. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 105. mál - stjórn fiskveiða Kl. 10:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Tómas Ingi Tómasson yrði framsögumaður þess.

6) 127. mál - búvörulög og búnaðarlög Kl. 10:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Hanna Katrín Friðriksson yrði framsögumaður þess.

7) 71. mál - grænir hvatar fyrir bændur Kl. 10:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Hanna Katrín Friðriksson yrði framsögumaður þess.

8) Önnur mál Kl. 10:50
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:10