29. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. janúar 2023 kl. 09:00


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:14
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:10
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH) fyrir Höllu Signýju Kristjánsdóttur (HSK), kl. 09:28
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:42
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um innheimtu dómsekta Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Björgvin Helgason ríkisendurskoðanda, Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur, Elísabetu Stefánsdóttur, Gest Pál Reynisson og Berglindi Glóð Garðarsdóttur frá Ríkisendurskoðun.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka Kl. 10:05
Nefndin fjallaði um málið.

Nefndin ákvað, í samræmi við 2. mgr. 35. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis að birta erindi sem nefndinni hafa borist í tengslum við málið.

4) Önnur mál Kl. 10:56
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00