7. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. október 2023 kl. 09:23


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:23
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:23
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 09:23
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:23
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:23
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:23
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) fyrir Höllu Signýju Kristjánsdóttur (HSK), kl. 09:23
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:23

Sigmar Guðmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:23
Fundargerðir 5. og 6. fundar voru samþykktar.

2) Beiðni um skipun rannsóknarnefndar vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 Kl. 09:24
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jón Svanberg Hjartarson frá Neyðarlínunni ohf.

3) Beiðni um aðgang að tilteknum gögnum í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbankab Kl. 10:19
Nefndin samþykkti, með vísan til 51. gr. þingskapa, tillögu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur um að óska eftir aðgangi að minnisblöðum, gögnum og öðrum þeim upplýsingum frá forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti sem varða stöðu Bankasýslu ríkisins sem sjálfstæðrar stofnunar og framkvæmd hæfisreglna stjórnsýsluréttar við undirbúning að áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 og lagðar voru fyrir ráðherra.

4) Önnur mál Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:23