Samantekt um þingmál

Ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015

3. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að breyta ýmsum lögum sem tengjast tekju- eða gjaldahlið ríkissjóðs í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2015.

Helstu breytingar og nýjungar

Flestar breytingarnar varða framlengingu núgildandi ákvæða eða vísitöluhækkun gjalda en aðrar breytingar eru meðal annars stytting bótatímabils atvinnuleysisbóta úr 36 mánuðum í 30 og að útgjöld vegna S-merktra og leyfisskyldra lyfja falli undir hið almenna greiðsluþátttökukerfi lyfja.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á 16 lögum.

Kostnaður og tekjur

Eykur tekjur ríkissjóðs um rúmlega 2 milljarða.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar athugasemdir bárust og sýndist sitt hverjum.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem ekki raska meginefni frumvarpsins.


Síðast breytt 17.12.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.