22.4.2024

Breytingar á starfsáætlun Alþingis: Nefndadagur 26. apríl

Forseti Alþingis hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að föstudagurinn 26. apríl verði nefndadagur.

Fundatafla er send út vegna breytingar á starfsáætlun og eru fundatímar eftirfarandi:

  • Kl. 9–12  B-nefndir: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.
  • Kl. 13–16  A-nefndir: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd

Endanlegir fundatímar og dagskrár birtast á vef Alþingis.

Nánari upplýsingar um nefndastörf, nefndadaga og fyrirkomulag þeirra